11. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 6. nóvember 2023 kl. 09:15


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:15
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:15
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG), kl. 09:15
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:15
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:15
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:31

Halla Signý Kristjánsdóttir og Hildur Sverrisdóttir boðuðu forföll.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerð 10. fundar var samþykkt.

2) Beiðni um skipun rannsóknarnefndar vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Árna Jónsson.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Sinfóníuhljómsveit Íslands - stjórnsýsluúttekt september 2023 Kl. 10:18
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurð Bjarka Gunnarsson og Emil Friðfinnsson frá starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Tillaga um að Þórunn Sveinbjarnardóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 10:33
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir vakti athygli á að beðið væri eftir afhendingu gagna í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem óskað var eftir á 7. fundi nefndarinnar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:37